Illustration of dry mouth.

Munnþurrkur

20. ágú. 2025

Munnþurrki fylgja alls kyns einkenni frá munni auk þess sem einkenni frá öðrum stöðum, t.d. augum, eru oft til staðar. Ástandið er oftast afleiðing af sjúkdómum eða lyfjagjöf og er í flestum tilvikum tengt  of lítilli innkirtlastarfsemi í líkamanum.

Munnþurrkur hefur margvísleg áhrif á starfsemi líkamans og skerðir verulega lífsgæði þeirra sem verða fyrir honum. Tal, bragðskyn, tygging, kynging, lyktarskyn, sjón og jafnvel kynlíf verður fyrir barðinu á þurrkinum. Tannheilsa er einnig í hættu.

Hvað orsakar munnþurrk?

Ein helsta ástæða munnþurrks er aukaverkun vegna inntöku lyfja. Aðrar ástæður geta verið munnöndun, skert tyggigeta, ýmsir sjúkdómar, til dæmis Sjögrens sjúkdómur, og geislun á höfuð og hálssvæði.

Yfir 1800 skráð lyf hafa áhrif á munnvatnsframleiðslu. Áttatíu prósent af tíu algengustu lyfjunum í Bandaríkjunum valda munnþurrki. Helstu flokkar lyfja sem hafa þessa aukaverkun eru blóðþrýstingslyf, kvíðastillandi lyf, þunglyndislyf, ofnæmislyf, megrunarlyf, Parkinsons lyf og verkjalyf.

Hvaða áhrif hefur munnþurrkur á tannheilsu?

Munnþurrkur getur á skömmum tíma breytt munnheilsu okkar  til hins verra. Þar sem munnvatn hefur margþættan tilgang í munninum  getur skortur á því haft slæmar afleiðingar fyrir tannheilsuna.

Munnvatn smyr munnslímhúðina og hjálpar til við tyggingu, tal, kyngingu og fleira. Munnvatn ver munnslímhúðina fyrir sýkingum og hlutleysir sýrur. Munnvatnið hjálpar líka til við sjálfhreinsun tanna.

Skortur á munnvatni eykur hættu á sýkingum í slímhúð, sérstaklega sveppasýkingum. Hættan á tannskemmdum stóreykst og skemmdir verða á tönnum og tannflötum sem annars skemmast varla. Einnig verður meiri hætta á skemmdum á rótaryfirborði tanna. Tannskemmdirnar verða oft mjög stórar á stuttum tíma.

Önnur einkenni munnþurrks geta verið andremma, varaþurrkur, breyting á bragðskyni, eymsli eða sár á tungu, tannholdsbólgur, talerfiðleikar, erfiðleikar við að tyggja og kyngja, eymsli í hálsi, sár undan gervitönnum og klístrað eða þykkt munnvatn.

Greining á munnþurrki

Til að greina hvers vegna munnþurrkur er til staðar getur þurft að gera mismunandi próf. Taka þarf nákvæma sjúkrasögu, kanna hvaða lyf er verið að taka og ef einhverjir sjúkdómar hafa verið greindir hjá viðkomandi sjúkling. Einnig þarf að gera nákvæma skoðun á tönnum og munni. Hægt er að taka mismunandi munnvatnspróf sem mæla flæði og gæði munnvatnsins. Stundum þarf einnig að taka blóðprufu ef grunur er um undirliggjandi ógreindan sjúkdóm. Í þeim tilvikum vísum við á heilsugæsluna.

Hvað er til ráða?

Þar sem munnþurrkur orsakast af mörgum ólíkum þáttum eru mismunandi leiðir til að ráða bót á honum. Í þeim tilfellum sem munnþurrkur er afleiðing lyfjatöku er stundum hægt að hætta eða minnka inntöku lyfjanna eða skipta yfir í annað lyf. Ef munnþurrkur er afleiðing sjúkdóms er stundum hægt að minnka munnþurrk með því að meðhöndla sjúkdóminn eða ná betri tökum á honum með lífstílsbreytingum.

Stundum er ekki hægt að minnka eða losna við munnþurrk. Þá þarf að gera það besta úr stöðunni með því að fara eftir ákveðnum ráðum.

1. Drekka mikið af vatni og oft yfir daginn.

Súpa oft á vatni meðan verið er að borða til auðvelda tyggingu og kyngingu og auka bragðskyn. Gott er að vera með vatnsbrúsa og súpa á vatni öðru hvoru. Einnig vera með vatn til taks við rúmið á nóttunni.

2. Örva munnvatnsflæðið.

3. Vernda harða og mjúka vefi munnsins með því að:

Þjáist þú af munnþurrki?

Við viljum hjálpa þér að viðhalda tannheilsu þinni og minnka afleiðingar munnþurrks á hana. Komdu í reglulegt eftirlit til tannlæknis hjá Tannlæknaþjónustunni og fáðu ráðleggingar sem hæfa þínu ástandi. Okkur er annt um heilsu þína og líðan.