Gervitennur

Gervitennur eru gómar úr plasti með ísettum tönnum og sitja á tannlausum gómum einstaklings. Hægt er að vera með gervitennur ýmist í báðum gómum eða öðrum. Í efri góm sogast gómurinn fastur að gómhvolfinu en í neðri góm veitir skeifulaga gómurinn minni festu.

Illustration of dentures

Hvað eru gervitennur?

Gervitennur koma í stað eigin tanna þegar allar tennur annars eða beggja góma hafa tapast. Ekki má búast við að gervitennur þjóni jafn vel og eigin tennur en sem betur fer venjast flestir því að nota þær með tímanum. Jákvætt hugarfar einstaklingsins og þekking og leikni tannlæknisins skipta þar miklu máli.

Þegar um algert tannleysi er að ræða eru til lausnir sem, fyrir flesta, eru betri en lausar gervitennur. Hægt er að græða titanium skrúfur, svo kallaða tannplanta, í góminn og setja smellur sem halda gervigómnum á sínum stað. Einnig er hægt að gera heilbrýr sem eru skrúfaðar fastar á tannplanta og er ekki hægt að taka niður. Oft að byrja ferlið með lausum gervigómum áður en frekari meðferð er framkvæmd. Aðstæður geta verið þannig hjá einstaklingum að tannplantameðferð sé ekki möguleg og þarf þá viðkomandi að sætta sig við hefðbundnar gervitennur. Eftirfarandi upplýsingar og ráð henta öllum sem eru með lausar gervitennur og með góma sem er smellt á tannplanta.

Notkun gervitanna

Gert er ráð fyrir að gervitennur séu notaðar allan sólarhringinn. Þó kann munnurinn að þarfnast hvíldar frá öðrum eða báðum gómum, sérstaklega þegar bitálag er mikið. Þá er ráðlagt að sofa ekki með gómana eða hvíla bitálag með því að sleppa því að vera með neðri góminn yfir nóttina. Best er að geyma tennurnar í vatni ef þær eru ekki í munni.

Byrjunarörðugleikar

Þegar hafin er notkun gervitanna í fyrsta sinn finnst mörgum þær vera lausar og velta og jafnvel sporðreisast þegar tuggið er. Fæðan festist við tennurnar og fer undir þær. Munnvatnsrennsli eykst og tal verður óskýrara. Fólki finnst tennurnar fyrirferðarmiklar, þröngt er um tungu og klígja er algeng.

Eftir því sem vöðvar andlitsins og tunga læra að styðja betur við tennurnar sitja þær betur. Einnig þarf að æfa framburð þeirra hljóða sem erfiðust reynast, til dæmis með því að lesa upphátt. Ef vandamál eru viðvarandi er ráðlagt að ræða þau við tannlækninn. Oft þarf að laga tennurnar til svo passi betur.

Útlit

Þegar þú færð nýjar gervitennur eða jafnvel gervitennur í fyrsta sinn kann þér að virðast útlit þitt nokkuð ankanalegt. Oft myndast spenna kringum munn og andlitsdrættir verða stífir og þandir. Það tekur nokkra daga fyrir andlitsvöðvana að venjast nýjum tönnum og færist þá andlitið aftur í eðlilegt horf. Stundum getur þurft að gera smá breytingar á gervitönnunum sem hjálpa til við þetta. Oft verður fólk mjög gagnrýnið á útlit sitt við þessar aðstæður og tekur eftir smáatriðum sem það hefur ekki velt fyrir sér áður. Mikilvægt er að ræða við tannlækninn ef einhverjar spurningar vakna sem varða útlitið.

Þótt oft sé hægt að ná fram töluverðri útlitsbætingu með nýjum gervitönnum í stað gamalla og slitinna, skal varast að hafa of miklar væntingar. Hægt er að ná fram ákveðinni fyllingu í andlit og hækka bit sem oft hefur jákvæð áhrif á útlit. Miklar hrukkur, til dæmis á efri vör, er varasamt að reyna að laga með gervitönnunum, til eru aðrar áhrifameiri leiðir til þess sem húð og lýtalæknar ráða yfir.

Tygging

Í byrjun getur verið örðugt að neyta matar með gervitönnunum. Velja skal auðtuggna fæðu og skera hana í smáa bita. Tyggja skal hægt í báðum hliðum munnsins samtímis og alls ekki með framtönnunum. Forðast ber seiga, harða eða límkennda fæðu. Fæstir geta bitið í sundur fæðu með framtönnunum í byrjun og sumir aldrei. Heppilegra er að bíta sundur fæðuna í hliðunum en varast að toga í fæðuna um leið. Tannplantar undir gervitönnum auka stöðugleika og bitkraft.

Særindi

Það tekur nokkrar vikur að venjast nýjum gervitönnum og algengt er að nuddsár myndist á gómhryggjum undan tönnunum. Ávalt skal leita til tannlæknis ef særindi myndast. Oft þarf að fræsa úr gervitönnunum til að létta á særindum og stundum þarf að koma í nokkur skipti. Slík þjónusta er innifalin í eitt ár eftir smíði gervitanna hjá Tannlæknaþjónustunni.

Umhirða gervitanna

Gervitennur þarf að hreinsa með þar til gerðum hreinsiefnum tvisvar á dag. Við mælum með að nota sprey sem eru ætluð til að hreinsa plastið og koma í veg fyrir að sveppagróður og önnur óhreinindi nái fótfestu í því. Þú getur keypt hreinsiefni fyrir gervitennur hjá okkur og í apótekum. Spreyað er á gervigómana að utan og innanverðu og burstað yfir með stífum bursta og tennurnar svo skolaðar með vatni. Ekki nota mjög heitt vatn. Slímhúð munnsins og tungan er líka burstuð með mjúkum bursta áður en gervitönnunum er komið fyrir aftur í munninum. Þú getur notað handsápu til að hreinsa tennurnar en hún hefur ekki sömu virkni. Ekki nota venjulegt tannkrem því það rispar plastið. Til eru hreinsiefni til að leysa upp tannstein og fastari óhreinindi og einnig má nota daufa edikblöndu í þeim tilgangi. (1 msk í glas af vatni). 

Tannplantar

Það er staðreynd að fólki gengur misvel að aðlagast notkun gervitanna. Sérstaklega erfitt getur reynst að venjast gervitönnum í neðri góm þar sem festa þar er oft síðri en í efri góm. Algengt er að græða skrúfur, svokallaða tannplanta, í gómhrygg neðri góms þar sem festa fyrir gervitennur er jafnan síðri en í efri góm. Smellum er komið fyrir á tannplöntunum og í gervitönnunum og þar með er komin góð festa. Sjúkratryggingar taka stóran þátt í kostnaði við tannplanta undir gervitennur og við gervitennurnar sjálfar.

Eftirlit

Það er misjafnt hversu lengi gervitennur duga einstaklingnum. Með tímanum rýrna gómhryggirnir og tennurnar fara að passa verr. Einnig slitna sjálfar tennurnar og bit lækkar. Það er mikilvægt að leita reglulega til tannlæknis og láta meta ástandið. Illa passandi gervitennur auka á rýrnun gómhryggjanna og gerir erfiðara að smíða nýjar tennur sem sitja vel.

Ef þú ert með tannplanta undir gervitönnum er mjög mikilvægt að láta líta eftir þeim að minnsta kosti einu sinni á ári. Tannsteinn getur sest á smellurnar og skipta þarf reglulega um plastfóðringar sem eru inn í gómnum.

Fóðrun

Þegar smíðaðar eru tennur beint á úrdráttarsár , svo kallaður blóðgómur, þarf oftast að fóðra góminn 6-8 mánuðum seinna og í einstaka tilfellum fyrr. Þá er tekið mót inn í gervigóminn og hann sendur til tannsmiðs sem setur fóðringu inn í góminn svo hann sitji betur. Það getur líka stundum vera betra að fóðra eldri gervitennur í stað þess að smíða nýjar.

Hvað kosta gervitennur?

Dæmi um kostnað við gervitennur getur þú séð í verðlistanum okkar. Gervitennur eru niðurgreiddar af Sjúkratryggingum fyrir öryrkja og eldri borgara.

Ert þú í vandræðum með þínar gervitennur?

Við hjá Tannlæknaþjónustunni viljum hjálpa þér að finna lausn sem hæfir þinni stöðu. Við skoðum hvert tilvik fyrir sig, komum með tillögur að meðferð og gerum kostnaðaráætlun. Þú ert hjartanlega velkomin(n) til okkar í skoðun og við finnum í sameiningu þá leið sem best er fyrir þig.